Handavinnubarinn
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Þessar snúningssnúrur frá KnitPro eru hannaðar til að gera prjónastundirnar aðeins þægilegri. 360° snúningskerfið leyfir prjónunum að snúast frjálslega sem minnkar líkur á að snúran vindi upp á sig eða flækist.
Snúrurnar eru úr stáli með nylonyfirborði sem gerir þær bæði sterkar og mjúkar í notkun. Snúran rennur þægilega í gegnum lykkjurnar án. Þú festir hana auðveldlega við útskiptanlega prjóna með meðfylgjandi lykli og götin á snúrunni má líka nota fyrir öryggislínu (lifeline) ef þarf.
Endatappar fylgja með og gera þér kleift að breyta snúrunni í lykkjuhaldara eða halda verkefninu öruggu á milli prjónastunda.
Í settinu færðu mismunandi lengdir svo þú getur lagað það að verkefninu hverju sinni, hvort sem þú ert í litlu eða stærra verkefni. Kemur í fallegu flauelsveski sem heldur utan um hlutina (og sparar smá leit í töskunni, sem er alltaf plús).
Fyrir þau sem kunna að meta rólegt flæði í prjóninu og minna bras.
Hægt er að fá fleiri stærðir af snúrum í sama stíl HÉR
