Þjónustuskilmálar

Handavinnubarinn er rekin af:

MB Kind Handverk ehf. 
Kt. 541125-1400 
Trönudalur 7 
260 Reykjanesbær 
Iceland 

Með því að versla í vefversluninni samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála.  

Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir vegna rangra eða ófullnægjandi verðupplýsinga eða augljósra mistaka sem og og að hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara. Öll verð eru birt með virðisaukaskatti (24% eða 11% eftir því sem við á) en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. 

Handgerðar vörur 
Allar handgerðar vörur sem gerðar eru af B Kind Handverk og eru til sölu í Handavinnubarnum eru unnar af alúð, þolinmæði og kærleika. Þar sem hver vara er handgerð getur komið fram eðlilegur breytileiki í lit, áferð, stærð og útliti. Slíkur breytileiki er hluti af eðli handverksins og telst ekki galli. 

Myndir á vefsíðunni eru ætlaðar til viðmiðunar og geta því ekki endurspeglað nákvæmlega hverja einstaka vöru. 

Skilaréttur og endurgreiðslur 

Við bjóðum 14 daga skilarétt frá móttöku vöru í samræmi við lög um fjarsölu, að því gefnu að sýnt sé fram á kaup með sölureikningi eða staðfestingu. Varan skal vera ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum. 

Endurgreiðsla miðast alltaf við það verð sem greitt var við kaup. 

Útsöluvörum er aðeins hægt að skipta fyrir aðrar útsöluvörur. 

Gjafabréfum er hvorki hægt að skila né skipta. Sérpantanir, þ.e. vörur sem eru sérstaklega framleiddar eða aðlagaðar að ósk kaupanda, falla ekki undir skilarétt. Sama gildir um vörur sem hafa verið notaðar eða opnaðar á þann hátt að þær teljist ekki lengur seljanlegar. 

Endurgreiðslur eru greiddar með sama greiðslumáta og notaður var við kaup og framkvæmdar innan 14 daga frá samþykkt skila. 

Gallaðar vörur 

Viðskiptavinur er hvattur til að skoða vöru við móttöku. Komi upp galli skal hann tilkynntur innan hæfilegs tíma eftir að gallinn kemur í ljós, í samræmi við lög um neytendakaup. 

Við bjóðum viðgerð, skipti eða endurgreiðslu eftir því sem við á. Sé um gallaða vöru að ræða greiðir seljandi sendingarkostnað sem til fellur. 

Sendingar 

Vörur eru almennt sendar með Dropp nema annað sé tekið fram. Við bjóðum upp á fría heimsendingu á Reykjanessvæðinu; póstnúmer 230, 232, 233, 260 og 262. Ásamt póstnúmerum 190, 240, 245, 250.  Möguleiki er á því að sækja í Innri Njarðvík eingöngu gegn því að senda okkur sérósk um það í tölvupósti; handavinnubarinn@handavinnubarinn.is og er slíkt gert í samkomulagi við seljanda. Venjulegur afhendingartími innanlands er 2–5 virkir dagar, verði seinkun á sendingu verður haft samband við viðskiptavin eins fljótt sem auðið er. Við mælum með að varan sé skoðuð við móttöku.