Knitpro
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Þessi snúningssnúra frá KnitPro er hönnuð til að gera prjónastundirnar aðeins þægilegri. 360° snúningskerfið leyfir prjónunum að snúast frjálslega sem minnkar líkur á að snúran vindi upp á sig eða flækist.
Snúran er úr stáli með nylonyfirborði sem gerir hana bæði sterka og mjúka í notkun. Hún rennur þægilega í gegnum lykkjurnar án. Þú festir hana auðveldlega við útskiptanlega prjóna með meðfylgjandi lykli og götin á snúrunni má líka nota fyrir öryggislínu (lifeline) ef þarf.
Endatappar fylgja með og gera þér kleift að breyta snúrunni í lykkjuhaldara eða halda verkefninu öruggu á milli prjónastunda.
Fyrir þau sem kunna að meta rólegt flæði í prjóninu og minna bras.
Fæst í stærðum: 40 cm, 50 cm, 120 cm og 150 cm (heildarlengd með pinnum).
