Skip to product information
1 of 2

Handavinnubarinn

Framvindu-og leiðbeiningar prjónamerki

Framvindu-og leiðbeiningar prjónamerki

Regular price 2.990 ISK
Regular price Sale price 2.990 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
Gerð
Quantity

Falleg og hagnýt prjónamerki úr viði sem hönnuð eru til að auðvelda þér prjónaskapinn, vinnuna við heklið, halda utan um framvindu og leiðbeiningar í því sem unnið er með.  Hönnuður leitaði innblásturs í merkin frá öðrum og hjá sér sjálfri, verandi með ríkjandi athyglisbrest og króníska gleymsku. Merkin eru létt, hljóðlát og renna vel á prjónum, fullkomin fyrir bæði byrjendur sem og lengra komna.

Allt settið inniheldur:

Stærðarmerki til að krækja í það stykki sem unnið er með, sem hentar vel þegar stykkið fær pásu og muna þarf hvaða stærð af prjónum/heklnál var notað í stykkið.

Lykkjumerki að merkja hversu margar lykkjur eru, einfaldar talningarferlið til muna sérstaklega ef stykkið sem unnið er með er stórt.

Leiðbeiningarmerki inniheldur helstu leiðbeiningar í prjóni, t.d. þegar auka þarf út, hvort stykkið sé hægri eða vinstri og margt fleira. 

Hægt er að kaupa allt settið saman eða í sitthvoru lagi.

Falleg gjöf fyrir prjónara og handverksunnendur!

Stærri settin koma í fallegum taupoka merktum B Kind Handverk fullkomið fyrir prjónatöskuna eða sem gjöf.

ATH! varan er sífellt að þróast og tökum við fagnandi á móti ábendingum sem mætti breyta og bæta. 

View full details