Handavinnubarinn
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Umferðateljarinn eða Prjónafiskurinn eins og hann er líka kallaður er tól sem hentar fyrir alla þá sem bæði prjóna, hekla eða stunda handavinnu sem þarfnast þess að muna hvar maður staddur í umferðum.
Umferðateljararnir koma með stjörnumerki sem einnig er framvindumerki til að minna mann á hvar maður er staddur í umferðunum. Ásamt stjörnumerkinu eru skrautsteinar í lit sem fylgja hverju stjörnumerki fyrir sig. Hægt er að velja um annað hvort gull eða silfur.
Umferðateljarinn er með 10 stk hringi sem renna létt á prjóna og henta hringirnir fyrir prjóna allt upp í 9mm á stærð.
Ef óskað er eftir því að vera með annan lit á skrautsteinum er hægt að kanna möguleikann á því með því að senda okkur tölvupóst á handavinnubarinn@handavinnubarinn.is
Myndband með leiðbeiningum er væntanlegt.
