Hentugur og stílhreinn prjónamælir úr léttu viðarefni sem sameinar prjónfestumælingu og prjónastærðarmæli í einu verkfæri. Mælirinn er frá B Kind Handverk og gerir hann þér kleift að finna rétta stærð á prjónum, mæla prjónfestu nákvæmlega og tryggja að verkefnið þitt verði samkvæmt uppskrift. Auðvelt að festa mælinn á prjónatösku eða lyklakippu – fullkomið fyrir prjónara á ferðinni.
Helstu eiginleikar
Mælir fyrir prjónastærðir 2–9 mm
Prjónfesturamma til að mæla lykkjur og umferðir, mælir í sentimetrum. Létt og gott viðarefni