Handavinnubarinn
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
FORPÖNTUN - Pöntum í hverri viku þegar lágmark fyrir pöntun næst.
Við bjóðum þetta garn í forpöntun og pöntum beint frá framleiðanda þegar pantanir berast.
Áætlaður afhendingartími er 7–10 virkir dagar. Þessi leið gerir okkur kleift að bjóða meira úrval, halda verðinu hagstæðu og forðast að sitja á stórum lager.
Ef lágmarksfjöldi pantana næst ekki í lok hverrar viku, verður pöntunin annað hvort send með næstu sendingu eða endurgreidd að fullu.
Pickles Teddy garnið er 100% náttúrulegt bouclé-garn úr hálandsull og alpakka. Gefur mjúkt bangsa útlit.
70% hálandsull / 30% alpakka
100 g hespur | 80 m
Prjónastærð: 7–12 mm
Prjónfesta: 7–12 lykkjur / 8–13 umferðir
Handþvottur
Við mælum með handþvotti í köldu eða ylvolgu vatni. Hægt er að vinda flíkina í þvottavél (athugið að velja aðeins vindustillingu, ekki skolun) til að ná mestu vatninu úr. Leggið flíkina síðan flata og mótið hana í rétta lögun. Hún þornar á nokkrum klukkustundum.
Uppskriftir sem notast er við Teddy er að finna Hér
Uppskriftir frá Pickles:
