Skip to product information
1 af 1

Handavinnubarinn

Pickles Bliss

Pickles Bliss

Venjulegt verð 1.790 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.790 ISK
Forpöntun Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litir
Magn

FORPÖNTUN - pöntum í hverri viku ef lágmark næst fyrir hverja pöntun. 

Við bjóðum þetta garn í forpöntun og pöntum beint frá framleiðanda þegar pantanir berast.
Áætlaður afhendingartími er 7–10 virkir dagar. Þessi leið gerir okkur kleift að bjóða meira úrval, halda verðinu hagstæðu og forðast að sitja á stórum lager.

Ef lágmarksfjöldi pantana næst ekki í lok hverrar viku, verður pöntunin annað hvort send með næstu sendingu eða endurgreidd að fullu.

Pickles Bliss er fín blanda af alpakka, ull og örlitlu móhair. Við bættum ull við til að gera áferðina léttari, smá mohair til að skapa fágaðan og lúxuskenndan blæ og alpakkan gefur efninu fallegt fall án þess að það sígi.

Við prjónum með einföldum þræði á 2,5–4 mm prjóna, eða á grófari prjóna með fylgiþræði. Garnið hentar fullkomlega í allar uppskriftir sem kalla á þunnt garn með fylgiþræði.

40% baby alpakka, 40% hálandsull, 20% mohair
50 g dokkur | 175 m
Prjónastærð: 2,5–4 mm
Prjónfesta á 10 cm: 23–26 lykkjur / 32–40 umferðir
Handþvottur

Pickles Bliss hentar vel í uppskriftir á 2,5–4 mm prjónum. Litapallettan þróast stöðugt og samanstendur af fallegri blöndu af mildum, náttúrulegum og ferskum tónum.

Við mælum með handþvotti í köldu eða ylvolgu vatni. Hægt er að vinda flíkina í þvottavél (athugið að velja aðeins vindustillingu, ekki skolun) til að ná mestu vatninu úr. Leggið flíkina síðan flata og mótið hana í rétta lögun. Hún þornar á nokkrum klukkustundum.

Uppskriftir sem Bliss er notað í eru að finna Hér 

Sýnishorn af uppskriftum frá Pickles - ýtið á myndirnar til að fara beint inn á síðu uppskriftarinnar. 

Objects Lamp shade

Image of a lamp with a handmade knitted green and yellow lampshade. Knitting pattern and yarn kit - Objects lamp shade is knitted in the round in herringbone technique using alpaca, wool, and mohair.

PicklesXyoga / Sockharines

PicklesXyoga / Eye mask

 

Sjá nánari upplýsingar