Skip to product information
1 af 1

Handavinnubarinn

KnitPro Mindful 13cm útskiptanlegir prjónar

KnitPro Mindful 13cm útskiptanlegir prjónar

Venjulegt verð 1.390 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.390 ISK
Forpöntun Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Stærð
Magn

Útskiptanlegir hringprjónar úr KnitPro Mindful línunni veita þér klukkustundir af ánægjulegu prjóni. Í þessari línu er lögð áhersla á prjónaskap sem núvitundaræfingu (mindfulness). Með því að einbeita sér að rólegri og endurteknum hreyfingum prjónanna skapast róandi áhrif sem geta dregið úr streitu og haft jákvæð áhrif á bæði líkama og huga.

Prjónarnir eru úr ryðfríu stáli sem er bæði endingargott og endurvinnanlegt. Þeir eru einstaklega vel slípaðir svo lykkjurnar renna mjúklega eftir prjónunum, og oddurinn er smám saman mjókkaður til að auðvelda prjónaskapinn. Auk stærðarinnar eru einnig hvetjandi orð grafin á prjónana sem minna þig á að njóta augnabliksins á meðan þú prjónar.

Þessir 13 cm skiptanlegu hringprjónar passa með öllum KnitPro snúrum og fylgihlutum.

Fást í stærðum:
3.00 mm, 3.50 mm, 4.00 mm, 4.50 mm, 5.00 mm, 5.50 mm, 6.00 mm, 6.50 mm, 7.00 mm, 8.00 mm og 10.0 mm.

Seldir í setti með 2 prjónum. Snúrur seljast sér og eru fáanlegar í mismunandi stærðum hér.

Sjá nánari upplýsingar